Við lifum bara einu sinni

Höllublogg

02.11.2009 23:15:58 / juddi

Tíminn

Það er aldeilis að tíminn flýgur frá manni. Nú er kominn nóvember og ef maður ætlar að útbúa jólagjafir á eigin spýtur er ekki seinna vænna að hefjast handa. Sérstaklega þegar kemur að Höllunni, því hún er kærulaust letidýr með frestunaráráttu á háu stigi. Hver einustu áramót kvarta ég og kveina yfir þessarri frestunaráráttu og lofa sjálfri mér því að dreifa jólagjöfunum yfir árið. Eitthvað verður nú alltaf lítið úr þessum áætlunum og ég enda á því að gera allt á síðustu stundu.

Svo er sonurinn að nálgast 7 ára aldurinn, einungis 2 og hálfur mánuður í það. Mér sem finnst hann ennþá bara vera 3ja ára...hrmpf...

Ég velti því líka fyrir mér af hverju maður nýti tímann ekki betur, með því að láta verða af eigin hugmyndum og áætlunum hvað varðar ferðalög og aðrar athafnir. Maður veit víst aldrei hvenær síðasti dagur lífsins rennur upp og ætti því að vera virkari en maður er. Allt of margir dagar fara í nákvæmlega ekki neitt. Ég syrgi alla þá daga sem ég hef ekki aðhafst neitt. Ég ætla að gera þá sjaldgæfari, ég ætla að einsetja mér að gera hluti sem ég hef ekki gert áður. Þetta þurfa ekki að vera stórir hlutir eða flóknir. Að þessum orðum skrifuðum ætla ég að leggja höfuðið í bleyti og leggjast til hvílu. Næst hef ég frá einhverju ótrúlega skemmtilegu að segja. Þar til næst...


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.10.2009 00:26:14 / juddi

Hallan er lifnuð við að nýju

Ég var að lesa blogg rétt í þessu og mig langaði svo að fara að skrifa blogg aftur. Ég veit að margir eru hættir að skoða blogg, en ég er að verða pínu leið á þessu Facebook-hangsi. Það er eitthvað svo takmarkað og ég verð að segja að mig langar að ögra huganum meira. Ég hef gaman af að skrifa um alls konar málefni og hef ekki verið nógu iðin við það að undanförnu. Því verður hér með breytt til hins betra.

Mig langar að segja nokkur orð um virðingu. Ég hef alla ævi unnið mikið við ýmis þjónustustörf. Fyrst við ferðaþjónustu og í kjölfarið vann ég í sjoppu, matvöruverslun, banka, við liðveislu og í leikskóla. Öll eiga þessi störf það sameiginlegt að stór hluti þeirra felst í því að koma til móts við þarfir annarra og því að þola margbreytileika mannskepnunnar. Mér finnst lítið mál að taka tillit til þarfa annarra og kann vel að meta margbreytileikann. Hins vegar þykir mér oft sem fólk beri ekki nógu mikla virðingu fyrir þessum þjónustustörfum. Oft og tíðum fær fólk í þjónustustörfum yfir sig óþarfa skítkast og leiðindi. Fólk gerir miklar kröfur til þjónustugeirans. Þjónustugeirinn byggist að sjálfsögðu upp á því að þjóna og því er eðlilegt að gera kröfur. Allt of algengt þykir mér þó að fólk geri óraunhæfar kröfur.

Ég hef meira og minna unnið á leikskóla frá því um haustið 2002 (með hléum) og þar kynnist maður ýmiss konar foreldrum. Ég ætla nú ekki að fara að taka nein einstök dæmi hér á veraldarvefnum, en það er mjög misjafnt hvernig og hversu miklar kröfur fólk gerir til leikskólakennara. Sumir virðast eingöngu líta á leikskólann sem eins konar geymslu fyrir barnið og hafa lítinn sem engan áhuga á starfinu sem fer þar fram. Aðrir gera ofurháar kröfur og virðast einnig halda að barnið þeirra sé eina barnið á leikskólanum. Sem betur fer gera flestir raunhæfar kröfur og sýna því skilning að leikskólakennarar eru mannlegir og þurfa að sinna fleirum börnum en þeirra eigin. Þetta er raunar mikil ábyrgð sem lögð er á herðar kennaranna, þ.e. að sinna þörfum barnanna eins og best verður á kosið. Það sem mér þykir þó oft leiðinlegt er að fólk veit stundum ekki hvað felst í starfinu. Margir virðast sjá leikskólakennara sem barnapíur. Þeir sömu virðast því ekki átta sig á því hversu mikla vinnu kennarar leggja í börnin þeirra. Með fullri virðingu fyrir barnapíum, þá felst starf leikskólakennara í meiru en að líta eftir börnum part úr degi. Við gerum okkar besta til að kenna börnunum að lifa í sátt við aðra, temja sér almennar kurteisisvenjur, fræðast um fjölbreytt viðfangsefni, fái örvun á öllum sviðum (myndlist, tónlist, móðurmál, hreyfing, stærðfræði, umhverfið) og umfram allt veita þeim hlýju, virðingu og öryggi.

En ég spyr, hvernig læra börnin að bera virðingu fyrir þeim sem þjónusta ef foreldrarnir gera það ekki? Eftir allt skiptir mestu hvað börnin læra af foreldrum sínum, þó að stór hluti lífs barna sé varið á uppeldisstofnunum. Mér finnst þetta starf oft mæta miklu vanþakklæti, t.d. ef litið er á laun leikskólakennara í samanburði við sum önnur störf. Ég gæti eflaust haldið lengi áfram að skrifa um þetta málefni en læt þetta duga að sinni. Ég vil bara minna fólk á að bera virðingu fyrir fólkinu sem þjónar ykkur allt í kringum ykkur. Það er bara að vinna vinnuna sína og á ekki alltaf skilið það virðingarleysi sem það mætir. Allar manneskjur eiga skilið virðingu.

Gullkorn dagsins:

Flestir eru aðeins læsir á stóra letrið í bók sköpunarverksins og líta ekki á það sem letrað er smátt á vallarblóm og vængi fiðrilda. – Adalbert Stifter />






» 4 hafa sagt sína skoðun

28.04.2009 21:20:19 / juddi

Hvert stefnir Halla?

Ég hef nokkuð lengi verið að velta því fyrir mér hvað ég vilji gera með líf mitt. Hvort mig langi að vinna áfram á leikskóla, hvort mig langi að mennta mig meira, hvort mig langi að fara að kenna í grunnskóla, eða eitthvað allt annað. Nú er ég komin með stefnu. Ég hafði hugsað mér að ef ég menntaði mig meira, þ.e. tæki mastergráðu, þá myndi ég hugsanlega velja námsráðgjöf, sérkennslu, sálfræði eða eitthvað slíkt. Það hefur nefnilega heillað mig meira í gegnum tíðina að geta unnið meira með einstaklinga en hópa. Nú hef ég tekið allt annan pól í hæðina og ákveðið að mig langar að verða heimilisfræðikennari. Mér hefur alltaf fundist gaman að elda og hef mikinn áhuga. Áður en ég fer að kenna heimilisfræði langar mig samt að læra undirstöðuatriði í meðferð matvæla og næringarfræði. Ég var mjög hissa, að ekki er gerð krafa á slíkt nám til að kenna heimilisfræði, einungis að maður hafi kennararéttindi. Persónulega myndi ég ekki fara út í heimilisfræðikennslu nema ég kynni meira í þessum efnum. Ég er bara svo glöð að vera komin með einhverja stefnu í lífið aftur, nú ætla ég að stefna að þessu og hinu markmiðinu; að flytja í sveit einhvern daginn.


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.04.2009 02:19:06 / juddi

More Than Words

"Saying I love you, is not the words I want to hear from you...." Hver kannast ekki við textann? Þetta er snilldarlag og ég er einmitt að hlusta á það núna. Þetta lag vekur ýmsar minningar hjá mér, sem tengjast mismunandi einstaklingum sem hafa komið við í lífi mínu. Ég er svo sammála þessum texta...það felst svo mikið meira í atferli, en í orðum...sammála???

Sjá textann á slóðinni hér að neðan...

http://www.lyrics.com/index.php/artists/lyric/extreme-p-4215-lyrics-more-than-words


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.03.2009 19:10:52 / juddi

Hallan hreyfir sig

Nú er ég aðeins farin að hreyfa mig og ég er bara býsna ánægð með mig. Ég er búin að fara 2x í yoga og það er sko alveg eitthvað fyrir mig, ég fíla það geðveikt. Svo skellti ég mér í salsa tíma í síðustu viku og það var bara fínt líka. Reyndar var ég hálfgerður flækjufótur en hver er það ekki í fyrsta skipti í einhverju svona dansdæmi. Mér áskotnaðist nefnilega mánaðarkort í Mecca Spa sem er bara örstutt frá mér. Í apríl mun ég byrja í Baðhúsinu, en þar er m.a. boðið upp á afró og magadans, en ég ætla að reyna að mæta í þá tíma. 8)

Nú er Sigtryggur að koma í land og þá verður Jónatan eitthvað hjá honum, svo ég fæ smá mömmufrí af og til núna næsta mánuðinn eða svo. Það er alltaf hressandi. :d

Meira var það ekki að þessu sinni. Þar til síðar...


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.02.2009 00:28:41 / juddi

Ég

Ég hef verið að lesa bloggið mitt aðeins undanfarna daga og byrjaði á byrjuninni, þ.e. fyrir 4 árum síðan og mér finnst ég hafa breyst svolítið. Mér finnst ég ekki eins lífsglöð og ég var og hreinlega ekki jafn skemmtilegur penni. Ég er pínu hrædd við hvert þetta stefnir hjá mér og ég ætla að gera eitthvað í þessu. Þegar ég lít í spegil sé ég bara þreytta líflausa konu, enginn eldur í mér lengur og ég geri hlutina án þess að hugsa um það. Ég set hlutina endalaust á bið, ég fresta öllu. Ég er einhvern veginn frosin. Ég ætla að reyna að ná eftirfarandi markmiðum:
  • horfa minna á sjónvarp
  • hanga minna í tölvunni...eins írónískt og það hljómar á þessari stundu...
  • hreyfa mig meira
  • vera yndislegri við son minn...hann á ekki skilið pirringinn sem ég læt bitna á honum...
  • gera meira af sálarnærandi hlutum eins og að mála, lesa bækur, fara á tónleika, hitta vinina o.s.frv.
  • vera duglegri að hafa hreint hjá mér...það er bara niðurdrepandi að horfa upp á draslið hjá sér...
  • vera meira á meðal fólks og tjá mig meira...er að hverfa inn í einhverja skel
  • vera meira hvatvís og lifandi
Þessum markmiðum ætla ég að reyna að ná, hvort sem það tekst fullkomlega, að hluta til eða hreint ekki. Ég veit ekki hvað það er, en ég hef rosalega mikið hugsað um undanfarið hvort ég sé að staðna á einhverjum stað sem ég vil ekki vera. Ég hef velt því fyrir mér hvort ég eigi að flytja en svo fór ég að hugsa að staðurinn skipti ekki öllu máli, ég yrði bara að vinna í sjálfri mér og ég veit ekki hvað ég vil fá út úr lífinu fyrr en ég geri það. Þegar ég hugsa málið, þá held ég að lang gáfulegast sé að vera áfram hér. Hér hef ég góða vinnu, gott húsnæði, frábært umhverfi, vini, ættingja og sonur minn á orðið rosa góða vini líka.

Ég veit ekki hvort einhver les þetta lengur, en þetta er svona pínu mín leið til að tjá mig, því einhverra hluta vegna á ég mun auðveldara með að koma hlutunum í orð ef ég skrifa það. Þegar ég tala þá tala ég stundum bara eintóma steypu eða fólk skilur ekki hvert ég er að fara eða ég kem ekki orðum að því sem ég er að reyna að segja og það er bara erfitt og þá finnst fólki ég bara skrýtin...sem ég er reyndar, en ég gæti mögulega verið aðeins eðlilegri...

Ehh, en hvað um það, þetta er orðið ágætt...bless!


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.02.2009 19:31:27 / juddi

Breytt útlit

Jæja, ég lét klippa mig á laugardaginn. Hún Elín Hulda sá um umbreytinguna. Ég er sem sagt orðin frekar stutthærð núna, gaman að breyta til svona endrum og eins. Ég skrapp sumsé til Akureyrar og hitti stelpurnar mínar. Það var mjög fínt.:haha:

Á fimmtudag fer ég til Prag á þessa kennararáðstefnu, á vegum eTwinning (evrópsk kennarasamskipti á netinu). Það er spennandi að ferðast á framandi slóðir. Jónatan varð eftir á Akureyri sökum þessarar ferðar. Svo ég er barnlaus núna í viku, frekar skrýtið, en um leið svolítið notalegt að eiga tímann fyrir sjálfan sig. 8)

Ég fór í prufutíma í Baðhúsið í síðustu viku og dauðlangar að kaupa mér árskort þar. Ég ætla samt að bíða aðeins með það og hugsa málið. :$

Þetta verður bara stutt og skorinort hjá mér í þetta skiptið, hafið það gott!! :d



» 1 hafa sagt sína skoðun

30.01.2009 12:43:18 / juddi

Konur

Fékk þetta sent í tölvupósti:

Whatever you give a woman, she will make greater.

If you give her sperm, she'll give you a baby.

If you give her a house, she'll give you a home.

If you give her groceries, she'll give you a meal.

If you give her a smile, she'll give you her heart.

She multiplies and enlarges what is given to her.

So, if you give her any crap, be ready to receive a ton of shit!!


Svolítið til í þessu, ekki satt?


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.01.2009 22:55:15 / juddi

6 ár í móðurhlutverki

Nú eru 6 ár liðin frá því að Jónatan fæddist. Alveg er það ótrúlegt hvað tíminn flýgur áfram, mér finnst ég stundum ekki deginum eldri en 20...en nú styttist óðum í 27 ára afmælið mitt. Það er svo sem ekki hár aldur, en engu að síður er ég farin að finna að ég er farin að eldast örlítið. Það eru svona smáir hlutir sem maður tekur eftir; fínar línur í kringum augun, húðin slakari o.s.frv.

En ég ætla ekki að hafa áhyggjur af því, heldur fagna því að ég skuli vera svo lánsöm að eldast og um leið fylgjast með syni mínum þroskast. Tek bara Pollýönnu á þetta. :d



» 3 hafa sagt sína skoðun

11.01.2009 23:38:55 / juddi

Árið 2009

Nýtt ár hefur nú gengið í garð og ég bíð spennt eftir þeim tækifærum sem árið 2009 mun bjóða upp á. Ég þarf að ákveða hvort ég ætli að vera áfram á höfuðborgarsvæðinu eða hvort ég flytji búferlum. Nú og ef ég ákveð að flytja, þá þarf ég að ákveða hvert ég muni flytja. Hvar svo sem ég ákveð að vera, þá á það bæði eftir að hafa kosti og galla. Þetta er að minnsta kosti hausverkur sem ég þarf að vinna á...á einhver aspirín handa mér?? :haha:

Ég er að fara til Prag í febrúar, á ráðstefnu með fólki sem ég þekki ekki neitt, það verður forvitnilegt. Ég þarf ekki að eyða krónu frekar en ég vil, því allt er borgað fyrir mig, flug, gisting og matur. Þetta er einkar gleðilegt þar sem ég sé ekki fram á að fara til útlanda í ár á eigin vegum. Sumarfrískostnaður verður í lágmarki hjá mér þetta árið, síðasta ár setti mig bókstaflega á hausinn og nú berst ég við að borga niður himinháan yfirdrátt...hvernig kem ég mér alltaf í þennan vítahring??

Hvað svo sem árið 2009 hefur í för með sér þá mun ég taka því sem að höndum ber eins vel og ég er fær um...hvernig svo sem það endar...


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.12.2008 05:10:10 / juddi

Gleðileg jól...

...og farsælt komandi ár! Þar sem ég ákvað að senda engin jólakort í ár, þá útbjó ég smá slideshow, sem kemur þá í stað jólakorta þetta árið. Gjörið svo vel!!



» 5 hafa sagt sína skoðun

07.12.2008 01:04:18 / juddi

Trúarbrögð

Ég vaknaði við útvarpsvekjarann minn í morgun og í útvarpinu var verið að ræða trúarbrögð og trúleysi. Sjálf verð ég að viðurkenna að ég er nær því að vera trúlaus en að iðka einhver trúarbrögð. Ég fer ekki í kirkju, að undanskildum athöfnum sem fram fara í kirkju. Sem barn og unglingur var ég trúuð og bað oft bænir. Með tíð og tíma hef ég fundið betur og betur að mér finnst trúarbrögð ekki henta mér. Mér hefur orðið það ljóst að ég get ekki trúað einu trúarriti frekar en öðru. Fyrir mér virkar þetta allt saman frekar keimlíkt og þjóna svipuðum tilgangi. Þar sem trúarbrögð finnast í öllum samfélögum er nokkuð ljóst að mannkynið trúir því að eitthvað æðra afl sé til staðar. Sjálf get ég tekið undir það að mögulega gæti verið til æðra afl. Það sem ég er ekki tilbúin til að samþykkja er að þetta afl sé einhver ákveðinn guð. Biblían og önnur trúarrit hafa búið til mynd af þessu afli og gefið aflinu ákveðið nafn. Trúarbrögð eru búin til af manninum. Einhvern tímann í fyrndinni voru ef til vill einhverjar manneskjur sem höfðu ótrúlegan sannfæringarmátt og sannfærðu alla í kringum sig um það að einhver guð hafi talað til þeirra og að allir ættu að gera hitt og þetta til að þjóna þessum guði (eða guðum). Í gegnum mannkynsöguna hafa ýmsir menn náð að heilaþvo heilu þjóðirnar, getur það ekki allt eins verið grunnur trúarbragðanna? Þetta fólk gæti allt eins hafa étið ofskynjunarsveppi eða verið geðsjúkt, hvað veit maður. Nú tala ég bara út frá mínu höfði, ég hef svo sem aldrei heyrt talað um kenningar á þessum nótum.

Í gegnum tíðina hafa trúarbrögð svo gjarnan verið notuð sem átylla til stríðs. Ég get ekki séð mun á því að ráðast inn í land og varpa sprengjum eða að labba í hús nágrannans og skjóta hann, eingöngu vegna þess að hann hefur aðrar skoðanir en ég. Mér finnst stríð vera glæpur, svo prédika að ég held flest trúarbrögð fyrir því að ekki eigi að drepa annan mann. Heimurinn er bara svo sjúkur og siðlaus að ég á ekki til orð. Má fólk ekki bara vera í friði með sitt, af hverju þarf þessi valdasýki alltaf að hafa yfirhöndina?

Æ, ég bara get ekki trúað á einhver ákveðin trúarbrögð, það er bara mín skoðun og allir aðrir mega trúa því sem þeir vilja fyrir mér. Ekki ætla ég að skipta mér af því og ég ætlast þess sama af öðrum, þ.e. að ég fái að hafa þessa skoðun mína í friði. Ég skil vel að fólk finni sátt í trúarbrögðum og oft skipa trúarbrögð sess í félagslífi fólks. Einnig er oft mjög fallegur boðskapur í trúarbrögðum, þó svo að mér finnist trúarbrögð ekki nauðsynleg til að við getum verið kurteis hvert við annað. Eins og ég segi, ég er ekki að reyna að móðga neinn hérna, þetta er bara eins og ég lít á málið.

Elskið ykkar nánustu, takið tillit til annara, verið jákvæð, berið virðingu fyrir ykkur sjálfum sem og öðrum og lifið lífinu til fulls. Það eru mín boðorð!




» 3 hafa sagt sína skoðun

24.11.2008 00:07:30 / juddi

Fegurð

Fegurð er svo undarlegt hugtak. Það má nota það yfir svo marga hluti og hver og einn hefur eigin skilgreiningu á hugtakinu. Fyrir mér er fegurð allt sem fær mann til að staldra við og dást að ákveðnum hlut í andartak, þannig að það snerti mann á einhvern ólýsanlegan hátt. Fegurð er ekki bara eitthvað sem við sjáum, við nemum fegurðina með öllum skilningarvitum okkar og upplifum hana. Þegar ég heyri lag sem snertir mig þá upplifi ég fegurð. Þegar ég fylgist með syni mínum sofandi upplifi ég fegurð. Þegar ég staldra við og dáist að málverki eða ljósmynd upplifi ég fegurð. Þegar ég verð vitni að góðverki upplifi ég fegurð.

Menn eru alltaf að reyna að setja upp mælikvarða á fegurð, en það er ekki hægt, fegurð er of persónubundin til að hægt sé að meta það til fulls. Fegurð tengist ást og væntumþykju því fegurð lætur okkur líða vel. Bara við það að upplifa eitthvað fallegt gefur manni þessa góðu tilfinningu og manni finnst allt svo yndislegt á þeim tímapunkti.

Hleypum fegurðinni í lífið okkar og njótum hennar til fullnustu

» 4 hafa sagt sína skoðun

07.11.2008 21:58:46 / juddi

Lélegt

Sko, þegar fólk getur ekki einu sinni kommentað á fyndin Fóstbræðraatriði, þá fer maður að velta fyrir sér hvað gleðji ykkur þá eiginlega!!! Já, maður spyr sig...

Farin í fýlu, bless!!



» 7 hafa sagt sína skoðun

03.11.2008 23:55:49 / juddi

Úlpan mín, oóóó...

Ég fór í afmæli um helgina hjá Helgu Maríu. Það var fjör og endaði á bæjarrölti hjá Höllunni.
Ég var þó eina stelpan sem tók þann pól í hæðina, rölti á milli ölhúsa með fjórum karlmönnum sem einnig eru fyrrum menntskælingar. Það var bara fínt verð ég að segja, ein í bænum með fjóra lífverði, gerist ekki betra. Það er líka oft minna vesen á strákum og svo þurfa þeir ekki að rjúka út á dansgólf öskrandi þegar þeir heyra uppáhaldslagið sitt...ekki það að ég sé saklaus í þeim efnum...

Allavega, þá varð ég svo samferða tveimur herramönnum heim af djamminu og einhverra hluta vegna fórum við að rifja upp atriði úr Fóstbræðrum þar sem Jón Gnarr syngur um úlpuna sína. Hér kemur lagið, en ég fann ekki myndbandið...snilld samt!


Hér er svo annað brot úr Fóstbræðrum sem mér finnst sjúklega fyndið



Að lokum kemur svo eitt gamalt og gott...


Yfir og út!

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14
Heimsóknir
Í dag:  5  Alls: 34993
Klukkan
Dagsetning
21. mars 2010
Könnun
Hver er uppáhalds árstíðin þín?





Góðgerðarstarfsemi
Þingeyjarsveit
  • " target='_self'>